RAL 7012

 

RAL 7042

 

RAL 7035

 

RAL 5014

 

NCS S 1030Y

 

NCS S 2020 G60Y

 

NCS S 2020 Y40R

EG 5000 Málað Epoxy Kvarts

Málað Epoxy-Kvarts – Endingarbestu gólfefni sem völ er á fyrir iðnað

Þessi gólfefnalausn er mjög sterk, viðhaldslítil og samskeytalaus. Helsti munurinn á máluðu Epoxy Kvarts gólfi og Epoxy Kvarts gólfi er að liturinn á gólfefninu er í lakkinu en ekki í kvartssandinum. Þetta gefur möguleika á að bjóða upp á hálkuvörn, sem er oft mjög mikilvægt þegar mikil bleyta er á gólfum þar sem fólk er að vinna. Því er málað Epoxy Kvarts yfirleitt valið á fiskvinnslur og aðrar matvælavinnslur þar sem bleyta er á gólfum.

Notast er við kvartssand í grófleika 0,8 – 1,4 mm í bæði grunn og í gólflögnina sjálfa. Þetta skilar okkur gólfi sem er 4 – 5 mm þykkt.

Hentar fyrir

  • Iðnað
  • Matvælavinnslur
  • Vörugeymslur
  • Blautrými

Verð á fermetra er frá 14.000 kr. með efni og vinnu.

Kostir

  • Einstaklega slitsterkt
  • Mikið höggþol
  • Frábært efnaþol
  • Samskeytalaust
  • Með hálkuvörn

Herslutími við 20°

  • Gangandi umferð eftir 18 – 24 klst
  • Létt umferð eftir 48 klst
  • Má setja vatn á gólfið eftir 48 klst
  • Fullt álag eftir 7 daga
Hafa samband