PUCEM SL – Slétt

Eurostep PUCEM SL gólfefnið er á bilinu 4 – 5 mm þykkt. Gólfið samanstendur af blöndu pólýúretani og sementi. PUCEM SL er sjálffljótandi gólfefni sem oftast er notað í iðnaðargeiranum.

Þetta gólfefni er einstaklega endingargott með miklu slitþoli. Gólfið er slétt og auðvelt að viðhalda.

PUCEM SL er vatnshelt með frábært efnaþol. Því hentar það vel þar sem verið er að vinna með olíur eða leysiefni.

Gólfefnið er með mikið hitaþol og þolir því heitt vatn mjög vel. 

Auðvelt er að þrífa þessi gólf og uppfyllir það ströngustu staðla varðandi matvælaöryggi.

Hentar fyrir

  • Matvælaiðnað
  • Efnaiðnað
  • Lyfjaiðnað
  • Mjólkuriðnað
  • Iðnaðareldhús
Hafa samband