RAL 7012

 

RAL 7042

 

RAL 7035

 

RAL 5014

 

NCS S 1030Y

 

NCS S 2020 G60Y

 

NCS S 2020 Y40R

EG 1500 Málað Epoxy Kvarts

Málað Epoxy-Kvarts – Endingarbestu gólfefni sem völ er á fyrir iðnað

Þessi gólfefnalausn er sterk, viðhaldslítil og samskeytalaus. Helsti munurinn á máluðu Epoxy Kvarts gólfi og Epoxy Kvarts gólfi er að liturinn á gólfefninu er í lakkinu en ekki í kvartssandinum. Þetta gefur möguleika á að bjóða upp á hálkuvörn, sem er oft mjög mikilvægt þegar mikil bleyta er á gólfum þar sem fólk er að vinna. Því er málað Epoxy Kvarts yfirleitt valið á fiskvinnslur og aðrar matvælavinnslur þar sem bleyta er á gólfum. 

Einnig er eini munurinn á EG 1500 og EG 5000 kornastærðin á kvartssandinum og þar af leiðandi þykktin á gólfinu.

Notast er við kvartssand í grófleika 0,4 – 0,8 mm í bæði grunn og í gólflögnina sjálfa. Þetta skilar okkur gólfi sem er 2 – 3 mm þykkt.

Hentar fyrir

  • Léttan iðnað
  • Matvælavinnslur
  • Vörugeymslur
  • Blautrými

Verð á fermetra er frá 10.250 kr. með efni og vinnu. Húlkíll eða sökkullisti er ekki innifalinn í því verði.

Kostir

  • Einstaklega slitsterkt
  • Mikið höggþol
  • Frábært efnaþol
  • Samskeytalaust
  • Með hálkuvörn

Herslutími við 20°

  • Gangandi umferð eftir 18 – 24 klst
  • Létt umferð eftir 48 klst
  • Má setja vatn á gólfið eftir 48 klst
  • Fullt álag eftir 7 daga
Hafa samband