Litablöndur
						
					Standard Mix
						
					Mix 6
						
					Ocean Blue
						
					Brown Mix
						
					Mix 9
						
					M158
Epoxy-kvarts – EG 4000
Epoxy-Kvarts – Endingarbestu gólfefni sem völ er á fyrir iðnað
Þessi gólf- og veggefnalausn er mjög sterk, viðhaldslítil og samskeytalaus. Því er Epoxy-Kvarts yfirleitt valið á iðnaðargólf, vörugeymslur og matvælavinnslur. Lokað yfirborð kemur í veg fyrir að óhreinindi komist ofan í gólfið og þannig er auðvelt að halda þeim hreinum. Litur gólfefnalausnarinnar kemur úr lituðum kvartssandi, sem gerir gólfin einstaklega slitsterk.
Notast er við litaðan kvartssand í gófleika 0,4 – 1,4 mm. Þetta skilar okkur gólfi sem er 3 – 4 mm þykkt.
Hentar fyrir
- Verslanir
 - Iðnað
 - Matvælavinnslur
 - Vörugeymslur
 - Iðnaðareldhús
 - Blautrými
 - Bílskúra
 
Fermetra á gólf er frá 13.500 kr. með efni og vinnu.
Fermetraverð á veggjum er frá 12.400 kr. með efni og vinnu.
Ekki er hægt að gefa tilboð í miðað við fermetra ef gólfflötur er minni en 16 fermetrar. Þá þarf að gefa sérstakt tilboð í verkið sem miðast við tímavinnu og efniskostnað.
Kostir
- Einstaklega slitsterkt
 - Mikið höggþol
 - Frábært efnaþol
 - Samskeytalaust
 - Auðvelt í þrifum
 
Herslutími við 20º
- Gangandi umferð eftir 18 – 24 klst
 - Létt umferð eftir 48 klst
 - Fullt álag eftir 7 daga
 
Hafa samband
